We’ve updated our Terms of Use to reflect our new entity name and address. You can review the changes here.
We’ve updated our Terms of Use. You can review the changes here.

H​é​r hv​í​lir b​ö​lvun

from Vitrun by Carpe Noctem

/

lyrics

Svartir drangar stjaksetja jörðina
naglar í líkkistu guðanna
Hér finnst ekkert mikilsvert
Engar dáðir voru framdar hér

Hér hvílir bölvun
sem var óstöðvandi fárviðri
á okkar tímum
Hér jörðuðum við frumsyndina,
vöggugjöf erfingjanna

Þetta er ekki griðastaður
þetta er ekki helgidómur

Lát kyrrt liggja!
Forðastu þennan stað!
Máðu grafhýsið úr huga þínum!

Þessi staður er prísund
haugur smánarinnar
og höfum við andúð á honum
Þessi staður er lykill
aðeins einn af mörgum
en hann opnar engar gættir

Hér liggur engilinn
og spinnur sér nýja vængi
úr óráðsdraumum sem leka
úr eyrum dreymandans

Varastu ásjónu hans!
Forðastu grafhýsi hans!
Nafn hans er fordæming
og ásjóna hans er sjúkdómur

Innsigli engilsins er viðvörun
hendur hans móta hold sem leir
augu hans brenna
með huldum loga
Hann er ljós sem upplýsir ekki
og bál sem brennur án hita
spjótið sem banaði drekanum
og vínið sem ærði spámanninn

Eitt sinn var veldi
sem brann um stutta stund
og hélt að turnar sínir myndu standa um ókomna tíð
Arfleifð okkar er glóð
dreifð í vindinum
Minning okkar
er linnulaus martröð

Þannig lát kyrrt liggja!
Láttu glóðina kulna!
Forðastu svörtu drangana!

credits

from Vitrun, released October 5, 2018

license

all rights reserved

tags

about

Carpe Noctem Reykjavík, Iceland

contact / help

Contact Carpe Noctem

Streaming and
Download help

Report this track or account

If you like Carpe Noctem, you may also like: