1. |
Vargsfæðing
04:29
|
|||
Á kúptum hæðum
standa steinaltari
þau rísa mót stjörnunum
Plánetur raðast
stundin upp runnin
Hún bíður þín
Fordæðuskapur
sá svarti seiður
kveðinn úr forneskju
Samgrónar huga okkar
Martraðir veruleikans
Lát hliðið opnast
Myrkradróttinn!
Þúsundeygða forneskja!
Rís úr djúpi drauma þinna!
Rís frá sjávarsvefni!
Hliðið, lykillinn og vegurinn
Hún leggst
Steinaltarið opnast
Svart sæði
mengar óspillta jörð
Hulin andlit
annars heims
blómstra í þokunni
Öskrandi illgresi
tenntir fálmarar
Myrka plánetan rís
Dregin úr draumdýpi
á beinhvítar strendur
Klakin úr fölri mánaskurn
martraðir djúpsins
Hugarfóstur, vargur í mannsmynd
í kviði hennar
Blóðug systkini mín
heyr kall mitt!
Leynist handan
við heimsins mynd
allt sem er; eitt er allt
Myrk opinberun
gleypir huga minn
Við dreymum heiminn á ný
Við köllum!
Hliðið, lykillinn og vegurinn
Hugur þinn minn
hold þitt er mitt!
|
||||
2. |
Jötunborinn
04:25
|
|||
Heyrið og hlustið
því tekið hef ég mannshjartað
til hvers
er sá sláttur?
Lífsins óður
sem sóað er á vanvita
ykkar
huldi máttur
Vaknið!
Ykkur var ei gefin
önd úr engu
Aurgelmis sála var
ykkar andi
Sól er í úlfakreppu
auga mitt á himni upp lokið
rísta skal svartrúnir sjö
á níðstöng Ásgarðs
Við rístum þær á!
Og völdum Fenrisfesti
að slitna!
Ginnsvikul goð ykkur
gera að krjúpa
Blekkingar Bölverks loks
burtu víkja!
Sól tér sortna
sekkur fold í mar
Rök ragna
er lausn manna
Jörð byggð úr Ýmis holdi
fólkslíf úr jötunsönd
Miðgarður verk násmiða
Ha!
Jötunbornar eru ættir manna.
Frelsunin
frá kúgun guða og kvöl sálar
er hugsunin
Hvað er með mönnum?
Hvað er með þursum?
Er munur þar á?
Ása er lævi og lygar
Jötna er heift og hefnd
Hvað er með þursum?
Hvað er með mönnum?
Er munur þar á?
Harðstjóra lát ekki lynda, því hetjan sig aldrei beygir
Þursinn þreyjar við vinda, þrællinn hlýðir og þegir
|
||||
3. |
||||
Þögul för
vegurinn þakinn þyrnum
þrír varðmenn
blóðþyrstir, blindir
Hljóður læðist hjá
þagmælskan þrúgandi
gulls ígildi
Skerandi ljós
blindar mig
læstar dyr
standa mér opnar
Leiðin handan
liggur djúpt
í frjálsu falli
ég glatast
Hugdjarft flón
sleppir hiklaust taki
ráfandi, villtur
að útgönguleið
Vitund mín klofnar
dauðinn fölnar
sandur stundaglassins
seitlar úr höfði mér
Auga mitt sokkið
hálfur í þessum heimi
Líflaus tóft fær séð
sem mönnum er hulið
Aftaka dyggðar
réttlæti fullnægt
Flugnasuð,
vein manna
Myrkur geislabaugur
krýnir höfuð mitt
Augu þín tendruð,
dómsdagsbálið
---
Fjarri harmi
ásýnd þín yljar mér
Leggst upp að barmi
djúpt í faðmi þér
Blóðug mein
af heljarskörum hylltur
Ástríðukvein
Trylltur
Og ég herði að kverkum þér
koss okkar mettaður dreyra
Og þú herðir að kverkum mér
hvíslar mér hröfnum í eyra!
---
Átthyrnda sól!
Kallaðu nafn mitt!
Morgunstjarnan hungrar
Níu dagar
og níu nætur
blóð kallar
á blóð
Gegn níu hlið, hrjáður
hef ég gengið dyggur
sem völvuþráður
í nálarauga liggur
Frá skuggaós
streymir allur minn styrkur
Það skærasta ljós
skapar dýpsta myrkur
|
||||
4. |
Skálholtsbrenna
08:11
|
|||
Takið upp kyndla
og berið eld að
í nótt skal kirkju brenna!
Enginn verður
óbrenndur biskup
Miskunn mun ei finna!
Sem eldur um sinu
ráðumst við fram
að ösku kristsvé verður!
Elds tunga
dóma mun fella
Miskunn mun ei finna!
Brennufár
geisar um jörð alla
Hreinsunareldurinn
mun burt svíða
kristið böl og veikleika!
Svartur reykur rís!
Tökum aftur það sem er okkar!
Takið upp kyndla
og berið eld að
í nótt skal kirkju brenna!
Enginn verður
óbrenndur biskup
Miskunn mun ei
hér finnast!
-
Askan stígur
upp til himna.
Drottins fé
kennir á biti úlfa
Salti er stráð
í jörðu þessa
ekkert mun hér
rót festa
|
Streaming and Download help
If you like Carpe Noctem, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp